„Ekki nota ljósabekki“ segir í nýrri yfirlýsingu norrænu geislavarnastofnananna um notkun ljósabekkja. Norrænu geislavarnastofnanirnar hafa frá 2005 varað við notkun ljósabekkja vegna hættu á húðkrabbameini og þykir nú ástæða til þess að ítreka fyrri viðvaranir.

Staðfest er að notkun ljósabekkja fylgir aukin hætta á húðkrabbameini enda setti  Alþjóðakrabbameinsrannsóknarstofnunin (IARC) ljósabekki í Flokk 1 árið 2009 en í honum eru staðfestir krabbameinsvaldar. Einnig hefur verið sýnt fram á að allri notkun ljósabekkja fylgir aukin hætta á húðkrabbameini sem og að hættan á húðkrabbameini eykst verulega þegar notkun ljósabekkja hefst fyrir 30 ára aldur.

Samstarfshópur Geislavarna, Embættis Landlæknis, húðlækna og Krabbameinsfélagsins hefur fylgst með ljósabekkjanotkun á Íslandi frá árinu 2004 með árlegri könnun sem framkvæmd hefur verið af Gallup.  Könnun ársins 2018 sýndi að um 8% fullorðinna Íslendinga höfðu notað ljósabekk á undangengnum 12 mánuðum. Könnun ársins 2016 sýndi að um 21% ungmenna (12-23 ára) höfðu notað ljósabekk á undangengnum 12 mánuðum. Geislavarnir kynntu m.a. þessar niðurstöður í erindi um þróun ljósabekkjanotkunar á Íslandi á ráðstefnu Norræna Geislavarnafélagsins (NSFS) í Finnlandi árið 2019.

Um sólarlampa (ljósabekki) gildir reglugerð 810/2003 um notkun sólarlampa og í lögum nr. 44 frá 2002 um geislavarnir eru ákvæði um að einstaklingum yngri en 18 ára séu óheimil afnot af sólarlömpum í fegrunarskyni á stöðum sem þurfa starfsleyfi svo sem á sólbaðstofum, heilsuræktarstöðvum og íþróttamiðstöðvum. Sambærileg ákvæði eru einnig í lögum í Finnlandi, Noregi og Svíþjóð.