Geislavarnir ríkisins eiga eftirtalinn mælibúnað til að mæla ójónandi geislun:
NARDA ELT 400 sem mælir segulsvið frá 1-400 kHz. Hann er meðal annars hentugur til að mæla segulsvið frá spennistöðvum og frá rafkerfi í heimahúsum.
NARDA NBM 520 með EF nema sem mælir rafsvið frá 100 kHz til 6 GHz. Hann er meðal annars hentugur til mælinga á sendingum frá farsímasendum.
Ofantaldir mælar eru sendir reglulega í kvörðun erlendis.
Stofnunin skal innheimta gjald fyrir mælingar á rafsegulsviði samkvæmt gjaldskrá sem ráðuneyti setur.
Aðrir mælar eru:
- Mælir til að mæla geislun í ljósabekkjum.
- Mælir til að mæla styrk leysa.
- Mælir til að mæla rafsvið á lágum tíðnum.
- Mælir á þaki Geislavarna sem fylgist með útfjólublárri geislun.